S 517 5785
Laugavegur 85, 101 Reykjavík

Verslunin Calvi opnaði 11.september 2007.
Eigandinn, Alvaro Miguel Calvi, hefur mikla reynslu á sviði gæðafatnaðar því hann starfaði
um 12 ára skeið í versluninni Sævar Karl, þar af í nokkur ár sem verslunarstjóri.

Verslunin Calvi sérhæfir sig í vönduðum gæðafatnaði þar sem áhersla er lögð á hágæðaefni,
klæðileg snið, vandaðan saumaskap og frágang þar sem hvert smáatriði skiptir máli.
Meðal þeirra merkja saem finna má í versluninni eru Corneliani, Armand Basi, Christian Lacroix og Porche.

Bæði kynin geta fundið eitthvað við sitt hæfi hjá Calvi því gott úrval er af bæði karlmanns- og kvenmannsfatnaði.
Hægt er að fá allt frá sokkum og skóm, til jakkafata og yfirhafna og allt þar á milli.
Hjá Calvi er lögð áhersla á að fötin passi viðskiptavininum fullkomlega og því er boðið upp á fleiri stærðir en
gengur og gerist, auk þess sem boðið er upp á bæði "made to measure" þjónustu og klæðskeraþjónustu.

© 2007, Calvi ehf.
Laugavegi 85, 101 Reykjavík
calvi@calvi.is
S 517 5785 
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum